Gummi Helga

Kokkurinn á Hótel Núpi

12.03.2009 02:30:54 / gummihelga

ferðasagan til Seattle

Jæja þá er komið að því að skella inn ferðasögunni í grófum dráttum, frá Akureyri var lagt af stað sem leið lá til Rvíkur með Flugleiðum á miðvikudaginn 4 mars með 50 kg af íslenskum þorramat í farteskinu, þaðan var svo haldið til Keflavíkur og tékkað inn í flug til Boston, flugið var í alla staði frábært glampandi sól og heiðskýrt þannig að Grænland og síðan austurstönd Kanada og USA var skoðað úr lofti.  Þegar lent var í Boston var dílað við tollarana sem voru nú ekki alveg sannfærðir í upphafi með það að leyfilegt væri að koma með þennan "skrítna" mat inn til USA en allt gekk það þó upp á endanum og skelltum við hjónin okkur á hótel um nóttina, byrjuðum á því að fá okkur kvöldverð og síðan var farið snemma að sofa að staðartíma en ekki eins snemma að okkar tíma.  Að morgni þess 5 var dagurinn tekin snemma enda áttum við flug til Seattle í gegnum Salt Lake City kl 6:30 ferðin þangað gekk í alla staði vel stutt stopp í SLC og komið til Seattle um hádegi að staðartíma (36 tímum eftir brottför frá AK), þar tók Zoe frænka Gumma á móti okkur og þar fengum við aðeins að svitna þar sem í fyrstu vantaði einn matarkassann þegar allur farangur var kominn en hann skilaði sér þó á endanum, sem betur fer.
Fimmtudegi og föstudegi var eytt í að redda því sem redda þurfti fyrir þorrablótið ásamt því að kíkja aðeins í búðir aðallega til að skoða verð, ásamt því að vinna upp síðasta ár í kjaftasögum af fjölskyldunni við frændfólkið.
Laugardagurinn fór í að undirbúa þorrablótið sem tókst í alla staði frábærlega vel og allir ánægðir. Um það leiti sem borðhald var að byrja kingdi niður snjó bara eins og vera á á þorrablóti og leist kananum ekkert á voru á tímabili hræddir um að liði myndi snjóa inni, ekki fannst okkur þetta mikill snjór festi ekki á götum en menn þurftu að taka upp sköfurnar til að verka af bílunum.
Á sunnudeginum var farið og verslað "smá" ásamt því að fara út að borða ásamt Hrönn, Láru, Sigga, Zoe og Chris og í leiðinni var ferð þeirra til Íslands í júní rædd fram og til baka, síðan var kíkt á pöbbinn og enduðum við í stúdíóinu hjá Chris á hljómsveitaræfingu, þar sem Gummi fékk aðeins að taka í kjuðana á settinu hjá Chris og leiddist honum það ekki.
Mánudagurinn var ekki tekin neitt sérstaklega snemma en þó náðu hjónin að versla aðeins meira og síðan var farið í að pakka niður og Seattle yfirgefin um miðnætti á mánudagskvöldi og töskurnar tékkaðar inn alla leið til Íslands svo ekki þyrfti að hafa áhyggjur af þeim í Boston.
Eftir að hafa millilent í Minneappolis þá var lent í Boston um 11 að morgni að staðartíma og drifum við okkur í miðbæinn og löbbuðum okkur upp að hnjám ásamt þvi að versla smá, lékum túrista fórum í skoðunarferð um Boston með leiðsögn, tókum einn drykk á Cheers og fengum okkur að nautasteik á einum elsta veitingarstað Boston áður en haldið var á flugvöllin eina ferðina enn. Þar tékkuðum við okkur inn og nú lá leiðin heim til Íslands sem svo sannarlega stóð undir nafni þegar lent var í Keflavík í roki, rigningu og skítakulda, akkúrat 24 tímum eftir að lagt var af stað frá Seattle.  Fórum beina leið á Reykjavíkurflugvöll og þaðan HEIM TIL AKUREYRAR lentum um 11:20 og skriðum beina leið uppí rúm til að vinna á móti svefnleysi síðasta sólahrings, þar sem eingöngu hafði verið sofið í flugvélunum.
Þrátt fyrir að ferðin hafi verið skemmtileg og alltaf skemmtilegt að sjá nýja staði þá er alltaf gott að komast heim í sitt eigið rúm
.

(fengið að láni a bloggsíðu frúarinnar :) )

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 01:43:00 / gummihelga

Nú hlæja þeir sem settu okkur á hausinn

Hef verið að fylgjast með umræðunni og er nú svo komið eftir mótmæli dagsins að ég hugs a eigum við eitthvað skárra skilið.Það eru sömu helv. flokka drættirnir í gangi og settu okkur á hausinn sem þjóð. Nú hlakkar í Geir, Davíð og félögum við að sjá ruglið sem er í gangi, við sem mótmælum erum að eyðileggja okkur innan frá.Það er bara þannig að þú skilur ekki útundann þó þér þykki einhver leiðinnlegur,leifið 'Asþóri að tala ansk hafi það og þá er það frá.Annars er það mín skoðun að menn eigi að mótmæla fyrir opnum tjöldum
sá sem er með klút fyrir andlitinu hefur eitthvað að fela. Það hafa nú liðið 15 vikur og allt er  nánst óbreytt.Ég held svei mér þá að næst sé að berjst við lögguna á Austurvelli .
En við verðum að sína samstöðu og dagurinn í dag var ömulegur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 02:13:31 / gummihelga

Jólahlaðborð

Ekki nóg með það að ég sé kominn á fullt í skóla heldur er ég nú komin á móti Sigga bróður mínum með Hótelið á Núpi í Dýrafirði.  Síðustu daga hef ég setið sveittur við að ganga frá matseðli fyrir jólahlaðborð sem boðið verður uppá í desember og fyrir ykkur sem ekki eruð á vestfjörðunum hvernig væri að skella sér með elskunni á sveitahótel fyrir vestan í jólahlaðborð og gistingu.  Matseðilinn á hlaðborðinu má sjá hér http://www.hotelnupur.is/veitingar/ eins og sjá má þá kennir þarna ýmissa grasa

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2008 21:24:51 / gummihelga

Jólahlaðborð

 það er orðið langt síðan síðast en það er brjálað að gera í skólanum og svo hef ég verið að skrifa matseðil fyrir jólahlaðborð á Núpi en við ættlum að bjóða upp á það á aðventunni
ef þú villt sjá hvað er í boði þá er þetta tengillinn: www.hotelnupur.is



» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 19:01:07 / gummihelga

skóli

jæja  þá byrja ég í skóla á morgun 
hættur að vinna á Fv
Nína að flytja að heiman
Ég fer á Núp um næstu helgi að vinna
Litla barnið mitt byrjar á sundnámskeiði á morgun




» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 11:26:24 / gummihelga

sveitasæla á Núpi

það er svo sannarlega réttnefni en við hjónin erum búin að vera hér í sveitasælunni á Núpi síðann á miðvikudagskvöld en ég var að hitta sigga bró í fyrsta sinn í tæp 5 ár en við höfðum ekkert náð að hittast síðan hann flutti heim og héldum við bræðurnir heilmikla afmælisveislu hér á núpi á fimmtudagkvöldinu og komu hér 50 manns ættingjar og vinir í fiskisúpu og brauð og svo var trallað fram eftir kvöldi
síðan tók alvaran við á föstudeginum og ég byrjaði að vinna en hér er búið að vera kærleiksvika í gangi og búið að vera nóg að gera og byrjaði ég svo með gestakokks seðil í gærkvöldi 4 rétta gúrmet seðil og var ég með eitt 13 manna borð í hann þannig að það var nóg að gera og verður hann í gangi fram á laugardag og geta menn séð hann á hotelnupur.is
síðanþegar við förum á sunnudag eða mánudag þá verður komið við hjá hörpu systir
og svo er búið að bjóða okkur í bústað á einarsstöðum í næstu viku þannig að þaðer nóg framundan meira seinna en ég er að fara í nudd núna :d:d


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 21:14:20 / gummihelga

langt síðan síðast

sem ég bloggaði en núna er framundan ættarmót móaættarinnar og verður gaman að hitta liðið svo er ég á leiðinni vestur í dýrafjörð að vinna með sigga bró annars allt bara gott
kv gummi


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 23:14:54 / gummihelga

hæ hó

jæja það er aldeilis mikið búið að  ganga á í mínu lífi síðustu vikuna. frúinn útskrifaðist úr háskóanum á laugardaginn fyrir hádegi eftir hádegi töfruðum við feðgarnir fram eina puttamatsveislu á fjórum tímum 14 tegundir og fengum síðan 60 manns í heimsókn í oddfellowhúsið sem að fögnuðu þessum tímamótum með okkur og var trallað alveg til fjögur um nóttina virkilega gaman en þar bauð ég meðal annars upp á rjúkandi bollu í þurrís mjög göróttur drykkur
meðal gesta var harpa systir og co og voru þau fyrir norðann alveg fram á 17 júníog dj var nú gaman að hitta þaug,en bæði átti harpa afmæli þann og við vordís 16 ára brúðkaupsafmæli
svo var nættúrulega brjálað að gera í vinnunni  líka
ég er búinn að fá formlegt svar frá hólum og er ég inni og mun hefja nám 2 sept kl 10 árdegis:d:d:d:d
svo að lokum áfram hollland
kv gummi



» 1 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 00:04:08 / gummihelga

nyjar myndir

jæja vildi bara láta vita að það eru komnar nýjar myndir á heimasíðunni hjá unganum mínum en þið getið hakað ykkur inn á hana hérna til hægri á síðunni
kv gummi

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 13:12:13 / gummihelga

Kominn inn

jæja þá er komið svar frá hólum og ég er kominn inn og mun hefja nám í ferðamálafræðum næsta haust á hólum í hjaltadal:lol::lol::lol:
brjálað að gera í vinnunni eins og venjulega sem er bara gaman en lappirnar á mér eru ekki alltaf sammála svona í lok dags
útskriftar og afmælisveislan hjá konunni um næstu helgi og kallinn ætlar að elda smá puttamat fyrir þessa elsku
em veislan byrjuð :haha::haha:8| og við búnir að stilla upp tólf tommu í eldhúsinu sem fær að loga þegar eru leikir
kv gummi


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 23:32:08 / gummihelga

helgarfrí

jæja þá er frábært helgarfrí búið og kallinn kominn aftur í vinnu en við hjónakornin fórum í bústaðinn og áttum frábæra tvo daga þar vorum komin um áttaleitið  á föstudagskvöldið þá kom í ljós tveir hlutir sem skigðu á annars frábært frí í fyrsta lagi hafði komist mús inn og var búin að naga gat á tánna á fjörtíuþúsund króna vöðlunum mínum (ég var ekki glaður) og svo var klósetið frostsprungið og míglak og var ónýtt en svo virðist sem ég hafi gleymt að setja frostlög í það í fyrrahaust þannig að það var brunað í víðigerði þegar þurfti að gera nr. 2 þessa helgina  en annars fengum við frábært veður lögðum netin og fórum út á vatn að veiða og fengum samt. 28 fiska
grilluðum góðann mat  svo var lesið og sofið út í eitt :):):):):):) og við komum  svo heim um átta leitið á sunnudagskvöldið og kíktum aðeins við á hólum og skönnuðum pleisið
meira seinna kv gummi

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 14:27:30 / gummihelga

Er á leið í skóla

jæja þá kallinn búinn að sækja um nám á hólum í hjaltadal á ferðamálabraut
vona bara að ég komist inn  en ég tel mikla möguleika vera í matartengdri ferðamensku
og ekki síst á eyjarfjarðarsvæðinu verða að segja að ég er frekar spenntur,
er svo að fara í bústaðinn í v-hópi um helgina og sé vatnið og bátinn minn í hillingum
og afslapelsi með frúnni og unganum og hugsanlega kemur baldur með líka
vona bara að það verði bongó
kv gummi

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 18:07:22 / gummihelga

dj dj dj

jæja mínir menn leeds unnu ekki á wembley í dag og verða næsta vetur enn í 3ju deild
dj ansk.
það var rólegt að gera á fv en það virtust allir vera að horfa á evróvision og ég tapaði veðmáli við nínu en hún var viss um að rússar mindu vinna þannig að ég skulda henni eitt rútufargjald austur í sumar en ég missti af alsherjar bílþvotti á skótaling
frúin búin að verja ritgerðina sína og stóð sig frábærlega og fekk 9 til hamingju elskan mín
elsta barnið mitt orðið sjálfráða (dj er maður orðinn gamall) en það rifjaðist upp fyrir kallinum að hann komm í heiminn daginn eftir að mamma varð 18 þannig er það nú
kv tapsári leedsarinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 22:24:33 / gummihelga

fótbolti

jæja mansester vann þetta ÓVERÐSKULDAÐ en það er svona það er ekki allt verðskuldað sem fæst í lífinu ég var að hugsa um að fara í bústaðinn og hitta tona og taka smá veiðitúr en varð svo að fresta því:whut::whut:
þannig að það verður bara evróvision partý hjá mæju annaðkvöld áfram dalvík:haha::haha::haha:
og svo er stóri dagurinn á föstudaginn frúin ver ritgerðina og frumburðurinn verður 18 ára rokk on stelpur mínar
kv gummi


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 20:43:11 / gummihelga

kominn í helgarfrí

jæja þá er maður kominn í helgarfrí ég var samt aðeins að vinna í morgun og verð að vinna á morgun framúr með veislu í listasafninu
nína og baldur eru búinn með skólan bæði tvö og stóðu sig vel bæði
 nína kláraði 25 einingar á önninni 8 fög þar af 3 í fjarnámi og með  þessu vann hún 3 kvöld í viku og var í fullu fiðlunámi spilaði með sinfóníuhljómsveit norðurlands á tónleikum :):):):) vinnuþjarkur eins og pabbi sinn ég er svo stolltur af stelpunni :lol::lol::lol::lol:
ef baldur hefði helminginn af nennunni sem systir hans hefur væri hann að dúxa  hanná aðeins eftir finna að vera í skóla er hardcore vinna en hann náði öllum prófum sem hann tók   en það sem er að pirra kallinn er að hann sagði sig úr nokkrum fögum vegna mætingar en ég veit að það kemur að því að hann nennir að læra vona bara að það verði fyrr en hjá sigga bróður:haha::haha::haha:
til hamingju krakkar mínir ég er stoltur af ykkur
talandi um sigga bróður þá verð ég á hótel núp að vinna hjá honum 9 daga í júlí nánar tiltekið 18-27 hlakka til að hitta kallinn en það er að verða ár síðan hann flutti heim og við ekki náð að hittast en síðann hann kom frá usa
annars er auglysingin komin í dagskránni sem við á fv vorum að mynda á mánudag og er bara helv. flott endilega kíkið á hana ef þið getið
meira seinna


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 10599
Klukkan
Könnun
hefur þú komið á Hótel Núp
já,oft
3 atkvæði

já,stundum
0 atkvæði

já,einu sinni
0 atkvæði

nei,aldrei
0 atkvæði

nei,en langar
0 atkvæði

nei,en kem örugglega næsta sumar
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 3